Bráðabirgða?
Hvernig er það, er þessi Bergþór ekki atvinnulaus verkfræðingur? Sérhæfður í einhverju í tölvugeiranum? Ég tók það þannig, skildi reyndar aldrei bofs í þessu villukjaftæði hjá honum.
Þar sem maðurinn er atvinnulaus og (hugsanlega) menntaður í tölvugeiranum þá finnst mér að hann ætti nú að reyna að koma einhverju lagi á þessa heimasíðuómynd sína sem er búin að vera til bráðabirgða síðan 2002 eftir því sem stendur á síðunni. Ef þetta eru vinnubrögðin hjá manninum þá skil ég vel að hann sé atvinnulaus, ekki mundi ég ráða hann í vinnu.
Hvað er líka málið með þessar eilífu vísbendingaspurningar? Finnst virkilega einhverjum gaman að þessu? Það virðist reyndar vera, einhverjir taka þátt í þessu hjá honum. Aðallega kvenfólk samt, og einhverjir ættingjar. Ætli þessar konur hafi aldrei séð manninn? Ég meina það eru myndir af honum inni á síðunni. Ekki það að ég ætli að fara að vera með skítkast út af útliti mannsins, nóg er nú samt.
Til dæmis er nú hönnunin á síðunni ekki upp á marga fiskana. Fimm ára barn gæti hannað mun fallegri síðu á örfáum mínútum. Af hverju ætli hann noti ekki blogger eða aðra slíka þjónustu? Spyr sá sem ekki veit.

5 Comments:
Hey addna, Beggi er einn af góðu strákunum og það má ekki segja svona um þá!
...og af hverju birtist nafnið mitt með litlum staf þegar ég skrifa það með stórum?
Rýnirinn hefur fyrsta og síðasta orðið.
Hvað veit ég um hvernig nöfn birtast.
Maður segir ekki "finnst einhverjum gaman af þessu", heldur "hefur einhver gaman af þessu?".
Takk fyrir mig.
Ha?
Skrifa ummæli
<< Home